Í gær var ég að velta vöngum yfir sýndarveruleikabeljum á Salon de l'Agriculture, hinni árlegu landbúnaðarsýningu Frakklands.
Og viti menn, í gær brutust út slagsmál þar sem ýmis verkfæri komu við sögu og endaði með að 15 manns voru teknir til skýrslugerðar á lögreglustöð.
Ekki er enn vita hvað olli ósættinu, en skýrt er tekið fram að áflogin áttu sér stað við sýningarbás fyrir núggat. Vissulega er alveg hægt að hafa sterkar skoðanir á núggati; brúnt úr hnetum á móti hvítu úr möndlum, o.s.frv.